Hvernig er sýndarveruleikaumhverfið?

  • Þátttakendur leysa einfalt verkefni í sýndarveruleika þar sem þeir munu sjá köngulær (köngulóarfælni) og spreyta sig á göngu yfir fjallagil á hengibrú (lofthræðsla).
  • Verkefnin eru einföld og þátttakendum þykir þau almennt skemmtileg, einnig þó þeir finni fyrir fælni.
  • Lífeðlisfræðilegar mælingar verða skráðar á meðan þátttakendur eru í sýndarveruleikanum. Þar á meðal eru hjartarit og húðleiðni sem eykst við svitamyndun. Þátttakendur munu geta séð valdar niðurstöður að verkefni loknu.

Hvað þurfa þátttakendur að gera?

  • Undirrita samþykkisyfirlýsingu sem er skilyrði fyrir þátttöku (sjá samþykki)
  • Gefa lífsýni með léttu stroki úr kinn til einangrunar erfðaefnis (sársauka- og hættulaust)
  • Svara stuttum spurningalista um kvíða og fælni (10 mín.)
  • Leysa einfalt verkefni í sýndarveruleika (20 mín. auk tíma í uppsetningu)
  • Framkvæmd rannsóknarinnar tekur um 45 mínútur
  • Að auki leysa þátttakendur stutt taugasálfræðiverkefni á netinu þegar þeim hentar (20 mín.)

Gott að vita

  • Sýndarveruleikinn getur kallað fram hræðsluviðbrögð hjá hluta þátttakenda. Líkamleg einkenni eru fyrst og fremst aukinn hjartsláttur, örari öndun og svitamyndun (sjá nánar um áhættu).
  • Þú getur hætt við þátttöku í rannsókninni hvenær sem er. Þú getur stöðvað sýndarveruleikaverkefnið á meðan á því stendur ef þú treystir þér ekki til að klára það.
  • Mælingar á fælniviðbrögðum eru gerðar með litlum rafskautum (elektróðum) sem settar eru við viðbein og á kvið (hjartarit), fingur og hendi (húðleiðni). Einnig er settur súrefnismettunarmælir á enni og öndun mæld með teygjanlegum beltum yfir maga og hitamæli við munn.
  • Rannsóknir á erfðaefninu og úrvinnsla á gögnum verður í höndum Íslenskrar erfðagreiningar. Öll gagnavinnsla fer fram á ópersónugreinanlegum, dulkóðuðum gögnum. Rannsóknin hefur verið samþykkt af Vísindasiðanefnd og verður öll meðferð gagna í samræmi við kröfur hennar og skilmála Persónuverndar.